Segja má að laxveiðin það sem af er sumri sé skjöldótt, þegar horft er yfir landið. Lélegt í Borgarfirði. Hrun í Húnavatnssýslum. Ágætt á Austurlandi og þokkalegt á Suðurlandi.
Rétt er að nefna að sumarið er enn tiltölulega ungt þegar kemur að norðanverðu landinu og Austurlandi. Það stöðumat sem hér er sett fram byggir á samanburði við síðasta ár sem var betra en fimm ár þar á undan. Þó náði síðasta ár ekki nema að mælast sem meðalár.
Besta veiðin í síðustu viku var í Ytri Rangá. Þar komu á land rétt tæplega 200 laxar. Aðeins fjórar ár á landinu öllu gáfu meira en hundrað laxa veiði í síðustu viku, þegar komið er fram á há sumar. Fyrir utan Ytri voru það, Þverá/Kjarrá og Norðurá í Borgarfirðinum og svo var Jökla með góða veiði. Elliðaárnar liggja við hundraðið en bókaðir voru 99 laxar þar í síðustu viku.
Þær Íris Schwietz Einars og Unnur Hlíðberg Hauksdóttir fengu þessa glæsilegu 90 sentímetra hrygnu á litla rauða Frances á Rangárflúðum. Ljósmynd/Harpa Hlín
mbl.is – Veiði · Lesa meira