Laxá – Hraun

Norðausturland
Eigandi myndar: veiditorg.is
Calendar

Veiðitímabil

01 júní – 31 ágúst

Bait

Leyfilegt agn

Fluga
Fishing rod

Fjöldi stanga

4 stangir
Stop

Kvóti

2 fiskar á stöng/dag
Information

Leiðsögn

Í boði
Accessibility

Aðgengi

Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi, Breyttir jeppar
Dollar

Verðbil

hálfur dagur

15000 kr. – 15000 kr.

Tegundir

Veiðin

Laxá í Aðaldal er ekki bara mjög góð laxveiðiá, heldur geymir hún einn sterkasta urriðastofn landsins. Á hverju ári veiðast nokkur þúsund urriðar í Laxá neðan virkjunnar og veiðin á bestu svæðunum er á milli 400-800 urriðar á sumri. Meðalstærðin er á milli 2 og 3 pund og töluvert veiðist af urriðum á bilinu 4-6 pund. Frábær þurrfluguveiði er á þessum svæðum í réttu veðri, en púpuveiði með tökuvara er samt algengust. Einnig er töluvert af veiðimönnum sem kjósa helst að veiða með straumflugum á þessum svæðum. Upplagt er fyrir stóra og litla hópa að bóka nokkra daga í Aðaldalnum og prófa þessi frábæru svæði,  þar sem hægt er að fara frá einu svæði yfir á það næsta, yfir nokkra daga tímabil. 

Hraun er viðfeðmt urriðasvæði í Laxá í Aðaldal, austan við ána á móti Staðartorfu, Múlatorfu og Syðra-Fjalli. Mjög fjölbreytt með mikilli náttúrufegurð og hreint frábært þurrflugusvæði þegar veður er hagstætt.

Gisting & aðstaða

Gistihús

Þinghúsið s: 464-3695, facebook.com/thinghusid

Gistiheimilið Brekka, s: 899-4218, guesthousebrekka.com

Veiðireglur

Hirða má 2 urriða á dag á stöng, en skylt er að sleppa öllu yfir 40 cm. Laxi skal sleppt aftur án undantekninga

Kort og leiðarlýsingar

Veiðisvæðið: Efra-Hraun frá skilti við Klambrey og að Skáleyjarstraumi. Neðra-Hraun frá Engey og að merki neðan Tvíflúð

Veiðibók

 

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Húsavík: 30km, Akureyri: 63 km um Vaðlaheiðagöng, Reykjavík: 452 km um Vaðlaheiðargöng

Nærliggjandi flugvellir

Akureyrarflugvöllur: 64 um Vaðlaheiðargöng

Veitingastaðir

Dalakofinn: 464-3344, dalakofinn.is

Heiðarbær: 464-3903, heidarbaer.is/

Áhugaverðir staðir

Mývatn og nágrenni: 37 km, Goðafoss: 30 km

Veiðileyfi og upplýsingar

Daglegur veiðitími

Morgunvakt

07:00 – 13:00

Kvöldvakt

16:00 – 22:00

Staðsetning

Norðausturland

Vinsælar flugur


Fréttir af veiði Laxá – Hraun

Engin nýleg veiði er á Laxá – Hraun!

Shopping Basket