Laxá – Presthvammur

Norðausturland
Eigandi myndar: fluguveidi.is
Calendar

Veiðitímabil

01 apríl – 20 september

Bait

Leyfilegt agn

Fluga
Fishing rod

Fjöldi stanga

2 stangir
Stop

Kvóti

2 fiskar á stöng/dag
Information

Leiðsögn

Í boði
Accessibility

Aðgengi

Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi, Einungis fótgangandi
Dollar

Verðbil

hálfur dagur

15000 kr. – 15000 kr.

Tegundir

Veiðin

Laxá í Aðaldal er ekki bara mjög góð laxveiðiá, heldur geymir hún einn sterkasta urriðastofn landsins. Á hverju ári veiðast nokkur þúsund urriðar í Laxá neðan virkjunnar og veiðin á bestu svæðunum er á milli 400-800 urriðar á sumri. Meðalstærðin er á milli 2 og 3 pund og töluvert veiðist af urriðum á bilinu 4-6 pund. Frábær þurrfluguveiði er á þessum svæðum í réttu veðri, en púpuveiði með tökuvara er samt algengust. Einnig er töluvert af veiðimönnum sem kjósa helst að veiða með straumflugum. Upplagt er fyrir stóra og litla hópa að bóka nokkra daga í Aðaldalnum og prófa þessi frábæru svæði, þar sem hægt er að fara frá einu svæði yfir á það næsta, á nokkra daga tímabili. 

Presthvammur er svæði á austurbakka Laxár í Aðaldal, fyrir neðan Laxárvirkjun. Það er um 2 km, skemmtilegt svæði með mikilli náttúrufegurð.

Gisting & aðstaða

Gistihús

Þinghúsið s: 464 3695, Gistiheimilið Brekka: 899-4218, guesthousebrekka.com

Aðrir gistimöguleikar

Í boði er gisting í kofa með rennandi vatni og salerni. Í kofanum eru áhöld til þess að hita og neyta matar. Þar eru tvö rúm og hægt er að tjalda eða setja upp tjaldvagn innan girðingar við veiðikofann.

Veiðireglur

Sleppa þarf laxi en tveggja fiska kvóti er á urriða á stöng á hálfum degi

Bátur er ekki á svæðinu eins og stendur, en það er í vinnslu að koma því á betri veg. Þá skal það tekið fram að oft getur verið talsvert slýrek í ánni, sérstaklega síðsumars og þá verða steinar hálir og skyggni í vatninu slæmt. Ástæða er til þess að biðja veiðimenn að fara varlega við slíkar aðstæður.

Kort og leiðarlýsingar

Veiðisvæðið nær frá girðingu fyrir neðan Ferjubreiðu neðri og upp að Röri. Svæðið telur 6 merkta veiðistaði og nokkra ómerkta

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Húsavík: 30 km, Akureyri: 61 km um Vaðlaheiðargöng, Reykjavík: 448 km um Vaðlaheiðargöng

Nærliggjandi flugvellir

Akureyrarflugvöllur: 61 km um Vaðlaheiðargöng

Veitingastaðir

Dalakofinn s: 464-3344, en.dalakofinn.is

Heiðarbær s: 464-3903, heidarbaer.is/

Áhugaverðir staðir

Mývatn: 34 km, Goðafoss: 27 km

Veiðileyfi og upplýsingar

Daglegur veiðitími

Morgunvakt

07:00 – 13:00

Kvöldvakt

16:00 – 22:00

Staðsetning

Norðausturland

Vinsælar flugur

Myndasafn


Fréttir af veiði Laxá – Presthvammur

Engin nýleg veiði er á Laxá – Presthvammur!

Shopping Basket