Rangá

Austurland
Calendar

Veiðitímabil

Bait

Leyfilegt agn

Fluga, Maðkur, Spúnn
Stop

Kvóti

Ótakmarkað
Information

Leiðsögn

ekki í boði
Accessibility

Aðgengi

Fjölskylduvænt, Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi, Jepplingar
Dollar

Verðbil

heill dagur

Tegundir

Veiðin

Rangá kemur úr vatni sem nefnist Sandvatn og rennur svo í Lagarfljót. Í uppánni má finna urriða og er hann frekar smár. Í neðri hluta árinnar var á árum áður töluvert af bleikju og þar sem hún rennur í Lagarfljót var oft hægt að lenda í mokveiði. Nú er sagan önnur, en veiðin er sögð hafa spillst við virkjunarframkvæmdirnar að Kárahnjúkum. Rangá er fiskgeng upp að fossi sem kenndur er við Fjármela sem er ekki langt frá bænum Skóghlíð. Þarna rennur hún í gili, þar sem finnast veiðihyljir sem erfitt er að komast að. Um þremur km fyrir neðan fossinn snarbeygir áin til norðausturs og er þar alls staðar veiðivon. Þaðan eru 7-8 km niður í Lagarfljót. Nokkuð neðan við brúna, þar sem þjóðvegurinn liggur yfir ána, eru nokkrir fallegir hyljir. Þekktasti veiðistaðurinn, Árkrókur, er þar sem beygja er á ánni og Merkjalækur rennur í hana. Best mun veiðin vera miðsumars og fram eftir hausti, ef vatnbúskapur er góður. 

Kort og leiðarlýsingar

Veiðisvæðið er um 11 km langt, frá Lagarfljóti að fossi við Fjármela

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Egilsstaðir: 12 km

Áhugaverðir staðir

Aðeins 7 km eru í Vök, böðin við Urriðavatn s: 470-9500, vok-baths.is/

Veiðileyfi og upplýsingar

Flúðir í Hróarstungu s: 471-1917 / 894-5917 og í Skógargerði s: 471-1935

Daglegur veiðitími

Staðsetning

Austurland

Fréttir af veiði Rangá

Engin nýleg veiði er á Rangá!

Shopping Basket