Syðri Brú er stórskemmtilegt laxveiðisvæði og eitt af fáum einnar stanga laxveiðisvæðum landsins. Svæðið hefur oft í gegnum tíðina verið með hæðstu veiði á stöng í Soginu. Besti veiðistaðurinn Landaklöpp, sem er efst á svæðinu, hefur oft gefið frábæra veiði. Viljum við benda veiðimönnum á að öll veiði er bönnuð frá gömlu brú sem liggur ofan við Landaklöpp. Á svæði Syðri Brúar veiðist einnig töluvert af bleikju og reitingur af urriða.
Mikil viðbrögð við Syðri Brú
„Það hafa verið mikil viðbrögð við svæðinu í Syðri Brú síðan það var opinberað að við í Veiðikló hefðum tekið það á leigu, enda skemmtilegt svæði, sagði Einar Páll Garðarsson hjá Veiðikló en