Voli

Suðurland
Eigandi myndar: leyfi.is
Calendar

Veiðitímabil

01 júní – 20 október

Bait

Leyfilegt agn

Fluga, Maðkur, Spúnn
Fishing rod

Fjöldi stanga

2 stangir
Stop

Kvóti

3 fiskar á stöng/dag

Gistimöguleikar

Veiðiskáli
Information

Leiðsögn

ekki í boði
Accessibility

Aðgengi

Fjölskylduvænt, Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi
Dollar

Verðbil

heill dagur

17000 kr. – 38000 kr.

Veiðin

Í Vola er staðbundnn urriði, staðbundin bleikja, sjóbirtingur, sjóbleikja, lax og jafnvel stöku áll.  Má segja að von sé í ágæta silungsveiði frá vori og fram til loka á haustin. Seld eru veiðileyfi til almennings og einungis eru 2 stangir leyfðar dag hvern út tímabilið sem nær. Veiðikort er af svæðinu með góðum vegamerkingum og bæjarnöfnum auk merktra veiðistaða. Svæðið er í nágrenni Selfoss eða innan við 10. mín. akstur hvort sem farið er að efri hluta svæðisins ( t.d. veiðihúsi ) eða að neðri veiðimörkum sem eru gamla brúin við Bár. 

Gisting & aðstaða

Veiðiskáli

Veiðihús er á svæðinu og stendur það við gömlu brúna við Vola. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, salerni, raflýsing, gashitun, gashellur, kolagrill o.fl. Veiðimenn skulu rýma húsið fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00. Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl. Veiðihúsið fylgir seldu veiðileyfi.

Veiðireglur

Taka má 3 fiska á dag á hverja stöng, en öllum fiski yfir 65 cm skal sleppt. Öllum sjóbirtingi ber að sleppa eftir 10. október. Veiðibók liggur frammi í veiðihúsi og er einnig í póstkassa við brúnna hjá Þingborg. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla. Stangirnar tvær á svæðinu eru ávallt seldar saman.

Kort og leiðarlýsingar

Með Bitrulæk er svæðið um 12-14 km. Það nær frá brú við Þingborg að gömlu brúnni við Bár

Veiðikort

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Selfoss: 15 km, Reykjavík: 72 km, Akureyri: 443 km

Veiðileyfi og upplýsingar

Veiðileyfi: leyfi.is

Veiðivörður:  Almar Sigurðsson Lambastöðum s: 777-0705. Umsjónarmenn: Steingrímur Ólafsson s: 897-3447  /  Jón Birgir Kristjánsson s: 695-9273

Daglegur veiðitími

Staðsetning

Suðurland

Vinsælar flugur


Fréttir af veiði Voli

Áhugaverðir vorveiðistaðir hjá SVFS

Áhugi á vorveiði á sjóbirtingi er mikill. Víða er uppselt í þekktu og hefðbundnu vorveiðisvæðin í Vestur – Skaftafellssýslu og á sama tíma hefur verðið á veiðileyfum þar um slóðir

Lesa meira »
Shopping Basket