Djúpá er í Þingeyjarsýslu, ekki langt frá Akureyri. Silungasvæðið nær frá Ljósavatni að uppistöðulóni hjá gamalli rafstöð sem er í landi Fremstafells og Hriflu. Í Djúpá eru stórir urriðar sem ganga niður úr Ljósavatni þegar líða tekur á sumarið. Fimm til sex punda fiskar eru ekki óalgengir og sést hafa stærri fiskar. Aðeins er veitt á flugu og öllum fiski skal sleppt. Einnig finnst staðbundin smábleikja, smáurriði og einstaka lax í ánni, en í mjög litlum mæli. Djúpá er ákaflega viðkvæm og nauðsýnlegt að fara varlega við veiðistaði. Mest er um hylji undir grasbökkum með smáeyrum á móti. Víða eru þetta djúpir hyljir og getur þar legið mikið af fiski. Þarna veiðist vel á straumflugur og oft fæst fiskurinn líka til að taka púpur og þurrflugur. Hann er hrifinn af svörtu og hafa svartir Nobblerar og Stirður gefið góða veiði. Einnig svartar púpur og þurrflugur, svo eru votflugur t.d. Teal & Black skæðar. Silungasvæðið fylgir nú veiðileyfum á laxasvæðið