Þórisvatn er nærst stærsta stöðuvatn Íslands, um 83 km² og getur yrfirborð þess sveiflast á milli 560 – 576 m hæðar yfir sjávarmáli. Það liggur milli Köldukvíslar og Hraunvatna í hálendi Rangárvallasýslu og er mesta dýpi þess 109 metrar. Suður í vatnið gengur alllangur höfði, Útigönguhöfði, sem skiptir því í tvo flóa. Þórisvatn hefur verið miðlunarlón Vatnsfellsvirkjunar, sem er við suðurenda vatnsins, frá árinu 1971. Yfirborðshæð þess sveiflast um 16,5 metra eftir árstímum. Lengi vel var vatnið talið fisklaust en ágæt mið fundust þar eftir miðja öldina. Eingöngu veiðist urriði og þykir mjög góður. Besta veiðin í vatninu er yfirleitt við Austurbotna og Grasatanga. Einnig er stundum góð veiði við Þórisós.
Flott veiði í Þórisstaðavatni
Veðrið hefur ekki verið upp á marga fiska þetta sumarið og þá er ég að tala um bátaveiði,” sagði Anna M Hálfdánardóttir í samtali við veiðar.is. „Það var keyrt í um