Krossá á Skarðsströnd

Vesturland
Eigandi myndar: Hreggnasi

Veiðitímabil

01 júlí – 20 september

Leyfilegt agn

Fluga

Fjöldi stanga

2 stangir

Kvóti

1 fiskur á stöng/dag

Gistimöguleikar

Veiðihús

Leiðsögn

Í boði

Aðgengi

Fjölskylduvænt, Þægilegt aðgengi, Þarfnast leyfi, Jepplingar

Verðbil

heill dagur

Tegundir

Lax

Veiðin

Krossá á Skarðsströnd er í Dalasýslu og fellur til sjávar í Geirmundarvog á Skarðsströnd. Áin er dragá og er um 15 km að lengd, en vatnasvið hennar er um 47 ferkm. Umhverfi Krossár er afar fallegt, kjarri vaxið og með útsýni út á Breiðafjörð. Við eðlilegar kringumstæður er hún fremur vatnslítil og því nauðsynlegt að fara með gát að veiðistöðum. Þessi netta laxveiðiá býr yfir 40 fjölbreyttum veiðistöðum, þar sem maðkur fer víða vel en einnig er heimilt að veiða á flugu. Meðalveði síðustu 10 árin hefur verið um 150 laxar. Veitt er tvo daga í senn, frá hádegi til hádegis. Áin er í einkanotkun

Gisting & aðstaða

Veiðihús

Gott veiðihús er við ána og umhverfi mjög fallegt. Húsið er ofan vegar við bæinn Á og er svefnrými fyrir 5 manns, auk mögulegs svefnrýmis í stofu. Einnig er þar eldunaraðstaða og sumarið 2019 var komið fyrir gufubaði við húsið.

Kort og leiðarlýsingar

Til að komast að Krossá er ekið sem leið liggur um Norðurárdal, beygt á þjóðveg nr. 60 um Bröttubrekku og farið í gegnum Búðardal. Styst er að aka um Svínadal að Skriðulandi (Jónsbúð) í Saurbæjarhreppi og þaðan eftir Klofningsvegi nr. 590, út Skarðsströnd að Krossá og upp til vinstri að bænum Á.

Krossá er fiskgeng um 12,4 km. Þessi netta laxveiðiá býr yfir 40 fjölbreyttum veiðistöðum, strengjum og hyljum

Þjónusta í nágrenninu

Fjarðlægð til bæja

Búðardalur: 65 km /  Reykjavík: 218 km

Nærliggjandi flugvellir

Reykjavíkurflugvöllur: 223 km

Veiðileyfi og upplýsingar

Veiðleyfi eru ekki í boði til almennings 

Daglegur veiðitími

Morgunvakt

07:00 – 13:00

Kvöldvakt

16:00 – 22:00

Staðsetning

Vesturland

Vinsælar flugur


Fréttir af veiði Krossá á Skarðsströnd

Engin nýleg veiði er á Krossá á Skarðsströnd!

Shopping Basket