Hér er um að ræða frekar nýtt veiðisvæði sem er að austanverðu, í landi Laugardæla og gólfvallarins á Selfossi. Um er að ræða góða silungsveiði að vori og er þar aðallega um að ræða sjóbirting. Lax fer að ganga um svæðið um miðjan júní og í meira magni þegar komið er fram í júlí. Þarna fer um allur sá lax sem er á leið sinni ofar í kerfið, m.a. í Sogið, Stóru Laxá og Tungufljót. Sjóbirtingur mætir svo aftur á haustinn og veiðist fram í október. Veiðisvæðið er afar fjölbreytt og veiðilegt, með mikla bakkalengt fyrir aðeins tvær stangir. Þarna má lenda í hörkuveiði, og þó meðalafli sé um 2-6 fiskar á dag, hafa sumir náð á land á annan tug fiska.

Nýr spennandi veiðimöguleiki!
Nú á vordögum opnaði nýtt veiðisvæði á austurbakka Ölfusá, í landi Laugardæla og gólfvallarins á Selfossi. Í boði er góð silungsveiði að vori, aðallega á sjóbirtingi og svo fer lax