Laxá í Aðaldal er ekki bara mjög góð laxveiðiá, heldur geymir hún einn sterkasta urriðastofn landsins. Á hverju ári veiðast nokkur þúsund urriðar í Laxá neðan virkjunnar og veiðin á bestu svæðunum er á milli 400-800 urriðar á sumri. Meðalstærðin er á milli 2 og 3 pund og töluvert veiðist af urriðum á bilinu 4-6 pund. Frábær þurrfluguveiði er á þessum svæðum í réttu veðri, en púpuveiði með tökuvara er samt algengust. Einnig er töluvert af veiðimönnum sem kjósa helst að veiða með straumflugum. Upplagt er fyrir stóra og litla hópa að bóka nokkra daga í Aðaldalnum og prófa þessi frábæru svæði, þar sem hægt er að fara frá einu svæði yfir á það næsta, á nokkra daga tímabili.
Presthvammur er svæði á austurbakka Laxár í Aðaldal, fyrir neðan Laxárvirkjun. Það er um 2 km, skemmtilegt svæði með mikilli náttúrufegurð.