Þetta er ein af vatnsmestu ám á Vestfjörðum með meðalrennsli í kringum 16 rúmm. / sek og á hún upptök sín á Ófeigsfjarðarheiði í um 500 metra hæð yfir sjávarmáli. Í Selá veiðist bæði sjóbleikja og lax en heldur hefur bleikjuveiðin minnkað undanfarin ár, hver svo sem ástæðan gæti verið. Meðalveiðin er um 200 bleikjur en fór uppí 600 bleikjur árið 2006 en hefur minnkað síðan. Laxaseiðum var sleppt fyrir allnokkrum árum og hefur meðalveiði á laxi verið í kringum 40 fiskar á sumri. Seiðabúskapur hefur verið mjög góður, að sögn formanns veiðifélagsins, og því hefur seiðum ekki verið sleppt í ána undanfarin ár.