Batman og Catwoman opnuðu Fremri Laxá

Fjórða árið í röð var það veiðihópurinn Veiðipöddurnar sem opnaði Fremri Laxá á Ásum. Það eru sex konur sem skipa hópinn og eru þær orðnar hagvanar. Veiðin var býsna róleg í opnunarhollinu. Vissulega settu þær í þó nokkra en lönduðu ekki nema sjö urriðum.

Veiðipöddur á kafi í meginþema ferðarinnar. Frá vinstri: Guðný Vilhjálmsdóttir, Katrín Sif Einarsdóttir, Guðfinna Pétursdóttir, Sandra Hrönn Traustadóttir, Hrönn Jónsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir.

mbl.is – Veiði · Lesa meira