Fyrsta vakt í Urriðafossi upp á tíu

Fyrsta veiðivaktin laxveiðisumarið 2024 var í morgun í Urriðafossi í Þjórsá. Tíu laxar veiddust og er það með betra móti. Fimm veiðimenn skiptu sér tveimur stöngum í rólegheita veiði og allir fengu fisk.

Harpa Hlín fékk þann stærsta í morgun og Birna landaði þeim fyrsta. Þessi hængur mældist 87 sentímetrar. Ljósmynd/Sporðaköst

mbl.is – Veiði · Lesa meira