Óhætt er að segja að Sæmundará í Skagafirði hafi opnað á jákvæðum nótum. Veitt var á tvær stangir í opnun og lönduðu þær tíu löxum. Þegar líður á tímabilið er stöngum fjölgað í þrjár.
Freyr Frostason með 87 sm. laxinn sem hann fékk í Melshyl í Sæmundará. Ljósmynd/Pétur Júlíus
mbl.is – Veiði · Lesa meira