Nú eru stærstu veiðivikurnar framundan á Vesturlandi. Þá er veiðin einnig að taka á sig mynd í öðrum landshlutum. Borgarfjarðaárnar eru að gefa töluvert betri veiði en í fyrra.
Þeir feðgar Stefán Sveinsson og Bergsveinn Stefánsson áttu ánægjulega stund í Fitjaá í Víðidal í morgun þegar Bergsveinn landaði 83 sentímetra maríulaxi í Kerfossi. Ljósmynd/Þorsteinn Stefánsson
mbl.is – Veiði · Lesa meira