Síðustu dagar hafa verið hreint út sagt magnaðir í Miðfirðinum. Fara þarf aftur til ársins 2018 til að finna sambærilegar veiðitölur. Stærsti dagurinn til þessa var föstudagurinn 26. júlí. Þá veiddust hvorki meira né minna en 63 laxar.
Stærstu laxarnir í Miðfjarðará er tveir 95 sentímetra fiskar. Hér er David með annan þeirra. Ljósmynd/Jóhann Birgisson
mbl.is – Veiði · Lesa meira