Hóp er á mörkum Vestur- og Austur-Húnavatnssýslna og er fimmta stærsta stöðuvatn landsins, um 44 km² að stærð. Veiði er heimil í öllu vatninu og eru þar margir ágætir veiðistaðir. Staðbundin bleikja, sjóbleikja, sjóbirtingur og töluvert af laxi veiðist hvert ár í Hópi, enda gengur mikið af laxi gegnum Hóp í Víðidalsá og Gljúfurá. Auðvelt er að komast að Hópi, því það er skammt frá þjóðvegi 1 um Húnaþing. Á fjöru kemur upp langt sandrif sem nær langleiðina yfir vatnið og er það mjög vinsæl reiðleið.