Stærstu urriðarnir yfir tólf pund

Tveir þriðju hlutar veiðitímans í Veiðivötnum á Landmannaafrétti eru nú að baki. Veiðin hefur verið með ágætum en þó töluvert undir veiði síðasta árs sem var það þriðja besta frá árinu 1965 samkvæmt tölfræði á heimasíðu Veiðivatna.

Helga Gísladóttir með bolta úr Veiðivötnum í sumar. Þessi mældist 2,6 kíló. Þeir stærstu hafa farið yfir sex kíló. Ljósmynd/HG

mbl.is – Veiði · Lesa meira