„Betra en bjartsýnustu menn áttu von á“

Jöklan hans Þrastar Elliðasonar fór í þúsund laxa í morgun. „Já þetta er sögulegur áfangi. Það hefði nú enginn trúað því þegar lagt var upp með þetta að þessi áfangi myndi nást. Menn voru jafnvel efins um að það myndi nokkurn tíma veiðast lax í Jöklu,“ sagði Þorvaldur P. Hjarðar formaður veiðifélags Jökulsár á Dal.

Þröstur Elliðason og Þorvaldur P. Hjarðar takast í hendur í morgun og samgleðjast yfir þeim merkisáfanga að Jökla hefur gefið þúsund laxa. Ljósmynd/Strengir

mbl.is – Veiði · Lesa meira