Veiðidagurinn 18. október í Eystri Rangá er tileinkaður SKB eða Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Tólf stangir eru til sölu og rennur andvirði þeirra að fullu til félagsins. Þetta er aðferð Jóhanns Davíðs Snorrasonar og Valdísar Ólafsdóttur konu hans til þakka SKB fyrir mikinn og dýrmætan stuðning.
Fremstur er Jóhann Davíð Snorrason og Markús Orri heldur á laxinum með honum. Yngri bróðirinn, Matthías Kári beygir sig og aftast er Valdís Ólafsdóttir. Ljósmynd/Jóhann Davíð
mbl.is – Veiði · Lesa meira