Sá jákvæði tónn sem Norðurá og fleiri laxveiðiár í Borgarfirði gáfu í upphafi veiðitímans í vor hefur hefur haldist út sumarið og síðasti laxinn í Norðurá í sumar veiddist í fyrradag. Lokaniðurstaðan er 1703 laxar.
Bergþóra Sigurðardóttir er hér með einn af þeim síðustu úr ánni þetta sumarið. Veiðistaðurinn er Kálfhylsbrot. Ljósmynd/AÞ
mbl.is – Veiði · Lesa meira