Lokatölur eru komnar í flestum af stóru laxveiðiánum og þær síðustu loka á allra næstu dögum. Veiðin í sumar er sú besta í fimm ár eða frá því 2018. Rangárnar lúta öðru lögmáli og loka ekki fyrr en 20. október.
Veiðin í Miðfjarðará var jöfn og góð í allt sumar. Hér er David með einn af stærstu löxum sumarsins úr Miðfirði, 95 sm fisk. Ljósmynd/Jóhann Birgisson
mbl.is – Veiði · Lesa meira