Lax sem veiddist í Bergsnös í Stóru Laxá í opnunarhollinu síðla júní var merktur með slöngumerki og sleppt. Þessi sami lax veiddist á nýjan leik í gær, þá tveimur sentímetrum lengri og hann veiddist aftur á sama veiðistað.
Hér er Matty með nýgenginn hænginn þann 22. júní. Mældist 92 sentímetrar og veiddur í Bergsnös í Stóru Laxá. Ljósmynd/Birkir Mar Harðarson
mbl.is – Veiði · Lesa meira