Galtarvatn er á Grímstunguheiði, stutt austan við veginn sem liggur upp úr Vatnsdal inn á heiðina. Það er í 510 m hæð yfir sjávarmáli og er áætlað flatarmál þess 0.65 km². Vatnið er ekki þekkt fyrir mikla stangveiði. Vatnsmiðlunarstífla var á sínum tíma reist fyrir Vatnsdalsá, við útfall Galtarvatnslæks, og eru skiptar skoðanir um hvaða áhrif hún hafði á fiskinn í vatninu. Framkvæmdin gerði það að verkum að vatnsyfirborð vatnsins hækkaði um allt að tvo metra og við það var talið að fæðuframboð í vatninu hafi batnað. Stíflan brast hins vegar fljótlega eftir að hún var reist og hafði það þau áhrif að bleikjan varð horuð um tíma og ekki góð til átu. Með tímanum hefur ástandið þó skánað töluvert.