Fegursta kennslustofa í heimi

Er hægt að hugsa sér betri kennslu­stofu fyr­ir nám­skeið í flugu­veiði, en Bugðu í Kjós? Senni­lega ekki. Átján gráðu hiti, glamp­andi sól, fal­leg­ir for­vitn­ir ís­lensk­ir hest­ar og tökuglaðir urriðar. Þetta var um­hverfið sem blasti við þátt­tak­end­um á nám­skeiðinu sem Simon Gawesworth og Kat­ka Svagrova stóðu fyr­ir í morg­un og hafa gert und­an­farna daga.

Simon Gawesworth með ánægðum nemanda við Bugðu í morgun. Hér er það Rannveig Harðardóttir sem fær leiðbeiningar varðandi púpuveiði. Ljósmynd/Sporðaköst

mbl.is – Veiði · Lesa meira