Mikael aftur með fyrsta laxinn í Skugga

Fyrsti laxinn á  þessu veiðitímabili veiddist í Skugga í Borgarfirði í dag eins og fyrir ári  næstum upp á mínútu. Það var Mikael Marinó Rivera sem veiddi laxinn sem var 86 cm og en þetta gerði líka Mikael í fyrra að veiða fyrsta lax sumarsins, sem kom líka á land í Skugga. 

„Já fyrsti laxinn eins og í fyrra hjá manni í Skugga,, sagði Mikael Marinó,, það er gaman að þessu, ég var með hann á í 20 mínútur,” sagði veiðimaðurinn ennfremur, nýbúinn að landa.

Mikael Marinó Rivera með fyrsta lax sumarsins úr Skugga í Borgarfirði, lax 86 cm

Veiðar · Lesa meira

Hvítá-Skuggi