Nú á vordögum opnaði nýtt veiðisvæði á austurbakka Ölfusá, í landi Laugardæla og gólfvallarins á Selfossi. Í boði er góð silungsveiði að vori, aðallega á sjóbirtingi og svo fer lax að ganga um miðjan júní og af meira krafti þegar komið er fram í júlí. Laxveiði er fram í september en á þeim tíma mætir sjóbirtingur aftur og veiðist fram í október. Um er að ræða fjölbreytt og veiðilegt veiðisvæði, með mikla bakkalengt fyrir aðeins tvær stangir. Þarna má lenda í hörkuveiði, þó meðalafli sé oftast um 2-6 fiskar á dag, hafa sumir náð á land á annan tug fiska. Leyfilegt er að taka með sér einn fisk á dag í soðið.
Veiðileyfi í Laugardæla fást í Veiðibúð Suðurlands á Selfossi, sem er staðsett á Austurvegi 22. Þar tekur hún Kolbrún Magnúsdóttir (Kolla) vel á móti ykkur. Opið er frá 10:00 – 18:00 virka daga, en 10:00 ð 14:00 á laugardögum.
Velkomin í Veiðibúð Suðurlands

Ljósmynd/Fallegur sjóbirtingur sem fékkst á Laugardæla svæðinu nú í vor
Samantekt unnin af Veiðiheimum í samstarfi við Kollu hjá Veiðibúð Suðurlands