Þær eru ófáar hætturnar sem steðja að Atlantshafslaxastofninum í Noregi um þessar mundir. Nú hafa áhrif laxeldis og hlýnandi loftslags skákað áhrifum vatnsaflsvirkjana á stofninn og verður það meðal annars til þess að laxveiðimenn sækja í meira mæli til Íslands.
Þetta segir Tor Haakon Bakken, prófessor við Norska tækniháskólann (NTNU), en hann hefur rannsakað og fjallað um sjálfbæra þróun vatnsafls, hlutverk lónakerfa í vatnsauðlindastjórnun, áhrif virkjana á náttúruna og áhrif loftslagsbreytinga á vatnakerfi.
Bakken er einn aðalfyrirlesarinn á Norrænu vatnafræðiráðstefnunni sem fór fram í Grósku en í fyrirlestri sínum í dag ræddi hann meðal annars stöðu Atlantshafslaxins í Noregi.
Í samtali við mbl.is segir hann að það að rannsaka stöðu laxastofnsins geti verið dýrmætt
„Það er hægt að horfa á stöðu villta laxins sem góðan vísi að stöðu lífríkisins. Ef laxastofninn heldur sér vel er lífríkið í góðum málum.“
Tor Haakon Bakken, prófessor við Norska tækniháskólann. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is – Veiði · Lesa meira