Sautján laxar á land á opnunardegi

Óhætt er að segja að opn­un­ar­dag­ur­inn í Norðurá skilaði fínni niður­stöðu. Sautján lax­ar komu á land og nokkr­ir misst­ust. Þetta er tveim­ur löx­um færra en í opn­un­inni í fyrra. „Þetta var geggjaður dag­ur og ekki síst í ljósi aðstæðna. Ég er ekki viss um að menn hafi átt von á því að landa sautján löx­um þegar þeir litu út um glugg­ann í morg­un. Híf­andi rok og skítak­uldi,“ sagði Rafn Val­ur Al­freðsson rekstr­araðili Norðurár í sam­tali við Sporðaköst í lok dags.

Norðurá var ekki nema í tíu rúm­metr­um og hita­töl­ur voru ekki upp á marga fiska. Loft­hiti á miðnætti í gær fór niður í frost­marka og var í kring­um fjór­ar gráður þegar menn gerðu sig klára eft­ir morg­un­mat. Vatns­hiti var í kring­um fimm til sex gráður.

Jóhann Birgisson tók þennan fallega vorlax á hitch. Alls skilaði opnunardagurinn í Norðurá sautján löxum. Ljósmynd/Rafn Valur Alfreðsson

mbl.is – Veiði · Lesa meira