Fyrsti laxinn úr Brennunni, sem er neðsta svæði Þverár í Borgarfirði kom á land í morgun. Þar var að verki kvennahópurinn Veiðipöddurnar. Hrönn Jónsdóttir setti í og landaði 76 sentímetra hæng. „Hann var kysstur bless og sendur beint upp í Kjarrá,“ upplýsti Hrönn alsæl með laxinn.
Veiðipöddurnar opna Brennuna í ár. Þær eru Kjarrárkonur og eiga það sameiginlegt að hafa unnið í veiðihúsinu við Kjarrá á einhverjum tíma. Þess vegna var fyrsti laxinn sendur beint þangað upp eftir.
Hrönn Jónsdóttir með fyrsta laxinn úr Brennunni þetta árið. 76 sentímetra hængur sem tók Valbein túbu. Þessi er á leiðinni upp í Kjarrá. Ljósmynd/Veiðipöddur
mbl.is – Veiði · Lesa meira