Opnunarhollið í Norðurá skilaði 30 löxum á tveimur og hálfum degi. Það er aðeins undir opnuninni í fyrra sem gaf 36 laxa. „Mér finnst þetta alveg frábær opnun þegar horft er til alls og gefur góð fyrirheit held ég,“ sagði Rafn Valur Alfreðsson, rekstraraðili Norðurár í Samtali við Sporðaköst eftir að opnun var lokið.
Það blés ekki byrlega í morgun þegar veiðimenn fóru út. Vatnshitastigið var 1,8 gráður. Samt sem áður veiddust fjórir laxar í morgun, þar af þrír á Eyrinni sem hefur verið alger yfirburðastaður í opnuninni. Sett var í lax á Bryggjunum en hann slapp og einnig var tyllt í fisk í Myrkhyl.
Þumall upp fyrir opnun í Norðurá. Hér brosa þeir sínu breiðasta Fjölvar Darri Rafnsson og Björn Björnsson með lax af Eyrinni. Ljósmynd/Rafn Valur Alfreðsson
mbl.is – Veiði · Lesa meira