Blöndubræður himinlifandi með morguninn

Þeir Blöndu­bræður, Árni Bald­urs­son og Reyn­ir Sig­munds­son lönduðu tveim­ur löx­um í morg­un í Blöndu. Þetta telst til tíðinda því að opn­an­ir síðustu tvö ár hafa ekki skilað laxi. 

Reyn­ir landaði 92 sentí­metra hrygnu í morg­un á Breiðu suður. Þegar langt var liðið á vakt­ina fór Árni Bald­urs­son upp í veiðihús og pakkaði sam­an far­angri til að geta ekið beint í bæ­inn. „Þegar ég kom aft­ur að Blöndu var eng­inn á Breiðunni að norðan­verðu. Klukk­an var hálf eitt og ég hljóp niður stig­ann. Sá allt í einu að það var kom­inn hettu­máv­ur á ánna. Fyrst tveir og svo voru þeir allt í einu orðnir sex. Ég tengi alltaf sam­an fugla og fiska. Ég óð út í með German Snæld­una mína. Þetta hef­ur verið svona í fimmta kasti. Þá tók hann með lát­um,“ greindi Árni frá aðspurður um hvernig þetta hefði viljað til.

Mikil gleði. Árni Baldursson fékk þessa 86 sentímetra hrygnu í lok vaktarinnar. Það komu tveir laxar í opnun Blöndu en síðustu tvö ár hefur ekki veiðst lax í opnunarhollinu. Ljósmynd/Reynir Sigmundsson

mbl.is – Veiði · Lesa meira