Júní uppfullur af spennandi opnunum

Laxveiðiárn­ar opna nú hver á fæt­ur ann­arri. Hér að neðan má sjá lista yfir hvenær þær helstu opna. Nú þegar er veiði haf­in í Norðurá, Blöndu og Urriðafossi. Einnig er búið að opna svæði í Borg­ar­f­irði á borð við Straum­ana, Skugga og Brenn­una. Næsta stóra opn­un, ef segja má sem svo er Þverá í Borg­ar­f­irði en hún opn­ar næst­kom­andi þriðju­dag, þann 10. júní.

Við setj­um líka inn í þenn­an lista hvenær stærsti straum­ur er. Næsti stóri straum­ur er 12. júní eða eft­ir tæpa viku. Nú er loks­ins að hlýna og stækk­andi straum­ur framund­an. Þetta eru spenn­andi tím­ar.

En hér er list­inn yfir opn­an­ir í nokkr­um af helstu laxveiðiám lands­ins. List­inn er ekki tæm­andi og við bæt­um við hann ber­ist upp­lýs­ing­ar um opn­un­ar­daga.

Hrönn Jónsdóttir með fyrsta laxinn úr Brennunni þetta árið. Brennan er neðsta svæðið í Þverá og sjálf aðaláin opnar á þriðjudag, þann 10. júní. Þeir eru mættir. Ljósmynd/Veiðipöddur

mbl.is – Veiði · Lesa meira