Tíu laxar voru færðir til bókar í Þverá á opnunardegi í dag. Eins og við greindum frá í dag skilaði fyrri vaktin sex löxum og sett var í fjóra til viðbótar. Eftir hádegi náðist einn lax í Brennunni sem er hluti af opnunarsvæðinu. Glæsileg tveggja ára hrygna veiddist í Kirkjustreng. Var það mál manna sem að viðureigninni komu að fiskurinn hefði verið þessi klassíski stórlax að vori. „Fiskar í heimsklassa,“ missti einn út úr sér. Hrygnan var grálúsug og viðbúið er að lax sé farinn að ganga í stækkandi straum sem nær hámarki sínu á fimmtdag.
Fiskar sem sáust Klapparfljóti voru að öllum líkindum komnir upp í Hólmatagl. Þar sást ekki fiskur í morgun en í fyrsta kasti eftir hádegi nelgdi 85 sentímetra hængur flugu veiðimannsins.
Styrkár Jökull Davíðsson með gerðarlegan grálúsugan lax sem hann fékk í Kirkjustreng í dag. Samtals komu tíu laxar á land í Þverá þennan opnunardag. Ljósmynd/DM
mbl.is – Veiði · Lesa meira