Nýr rekstraraðili er tekinn við Blöndu, eins og við höfum greint frá. Það er félagið Fish Partner sem sér um umboðssölu á veiðileyfum Blöndu og Svartá fyrir veiðifélagið. Félagið tekur við ánni á afar erfiðum tíma. Veiði í Blöndu hefur verið mjög döpur síðustu ár.
Tekist á við lax í Blöndu. Nýr rekstraraðili sem er Fish Partner segir verðin lækka mikið þar í sumar. Ljósmynd/Fish Partner
mbl.is – Veiði · Lesa meira