Dorgveiðin nýtur mikilla vinsælda

Um 100 manns komu saman á ísilögðu Mývatni um helgina til að dorga. Viðburðurinn er partur af Vetrarhátíð við Mývatn en þá geta gestir og gangandi prufað að dorga í boði Veiðifélags Mývatns. Dorgið nýtur alltaf gífurlegra vinsælda á Vetrarhátíðinni sem er haldin ár hvert í byrjun mars. 

Veðrið lék við gesti á Mývatni og ísinn var hnausþykkur og góður. Þótt veiðin hafi ekki verið uppá marga fiska þar sem aðeins ein branda kom upp úr vök var gleðin við völd og bros á hverju andliti. Gestir fengu leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við dorgið frá Leifi Hallgrímssyni hjá Veiðifélagi Mývatns og gàtu svo hlýjað sér við góðan kakóbolla í boði Vogafjóss.

Ljósmynd/Dorgað á Mývatni

Veiðar · Lesa meira