Ævintýri á færibandi síðustu daga

Það er víða búið að vera gam­an hjá sil­ungsveiðimönn­um í ám og vötn­um á síðustu dög­um. Hlý­ind­in og birt­an kveikja á líf­inu. Skor­dýr­in fara á stjá og þá aukast lík­ur á fiski og svo er það veiðimaður­inn sem er kom­inn á fullt.

Veiðimenn sem hafa verið í sam­bandi við Sporðaköst hafa sagt frá veiði og æv­in­týr­um í kring­um þau. Er engu lík­ara en að þau æv­in­týri komi á færi­bandi þessa síðustu daga. Þeir Vík­ing­ur Manú­el Elías­son og Páll Gísli Jóns­son gerðu góða ferð í það van­metna veiðivatn Laug­ar­vatn um helg­ina. Þeir settu í nokkra urriða, bæði á maðk og flugu. „Þetta var þræl skemmti­legt. Aðeins kalt en það fylg­ir þess­um árs­tíma. Vana­lega hef ég verið að veiða bleikju þarna en núna var urriði á svæðinu. Við lönduðum tveim­ur og þetta voru flott­ir urriðar,“ sagði Páll í sam­tali við Sporðaköst. Hann er einn af þess­um sem er með ódrep­andi veiðidellu. Er það ekki? „Jú. Það er víst. Við fór­um eitt árið í Laug­ar­vatnið í fe­brú­ar og vor­um þá að kasta flugu á ís­inn og draga hana fram af skör­inni. Við vor­um að nota Langskegg og þær negldu þetta um leið og Langskegg­ur­inn datt út í. Við feng­um á stutt­um tíma ein­hverj­ar tíu bleikj­ur,“ hlær hann. 

Góður urriði úr Laugarvatni. Víkingur Manúel Elíasson fékk hann á maðk og var alsæll en mældist hann ríflega 50 sentímetrar. Ljósmynd/Páll Gísli

mbl.is – Veiði · Lesa meira