Sigurður G. Duret ákvað að skella sér í Vífilstaðavatn í blíðunni í dag. Hann hafði aldrei veitt áður í vatninu og vissi svo sem ekki mikið um það. Það voru tuttugu gráður, gola og lífið var ljúft um hádegi þegar hann mætti. Fyrst fékk hann tvær ríflega punds bleikjur, eins og margir þekkja úr Vífilsstaðavatni. Hann var með stöng fyrir línu fimm, Faro click bremsulaust hjól og valdi grennsta tauminn sem hann fann. „Þetta var tveggja eða þriggja punda taumur. Ég setti svo undir Zebra midge númer sextán. Í svona þriðja kasti þegar flugan var nýlega lent sá ég tökuvarann hverfa. Ég fann strax að þessi hagaði sér öðruvísi en hinar. Grunaði jafnvel að ég hefði húkkað í hana og þess vegna væri hún svona tryllt. Svo þegar ég sá hana fékk ég bara sjokk,“ sagði Sigurður í samtali við Sporðaköst.
Þetta varð hörku viðureign eins og gefur að skilja. Bremsulaust hjól og nettar græjur. Hún rauk líka langt niður á undirlínu og mittisvöðlurnar dugðu ekki til. Sigurður fór upp fyrir þegar hann var elta þessa kröftugu bleikju. Loksins kom hún á land og hann ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum.
Með þessa líka bleikjuna úr Vífilsstaðavatni. Ríflega sjötíu sentímetrar. Henni var sleppt og er því áfram í fæðuleit í vatninu. Ljósmynd/Sigurður G. Duret
mbl.is – Veiði · Lesa meira