Öllum vistmönnum boðið í Hlíðarvatn

„Ég stunda Hlíðar­vatnið mikið og þá keyr­ir maður alltaf fram­hjá Krýsu­vík­ur­skól­an­um og ég þekki það frá­bæra starf sem þar er unnið. Svo var það í vet­ur að ég fékk þá hug­mynd að búa til veiðidag fyr­ir alla vist­menn. Það var tölu­verður und­ir­bún­ing­ur sem fór í þetta og ég náði að koma þessu sam­an og það voru all­ir til,“ upp­lýs­ir Ívar Braga­son flugu­veiðimaður. Hann var aðal­hvatamaður að veiðidegi sem hald­inn var í vik­unni í Hlíðar­vatni fyr­ir alla vist­menn sem dvelja á meðferðar­heim­il­inu Krýsu­vík.

Mæt­ing var klukk­an átta við Krýsu­vík. Veðrið var tutt­ugu gráður og nán­ast logn. Ríf­lega tutt­ugu manns voru mætt á tröpp­un­um og það var eft­ir­vænt­ing í loft­inu. Í þess­um hópi voru all­ar út­gáf­ur. Sum­ir þekktu vel til flugu­veiði. Aðrir höfðu aldrei sveiflað flugu­stöng. Leiðsögu­menn voru mætt­ir, Jó­hann Birg­is­son og Helgi Guðbrands­son, sem báðir hafa stundað leiðsögn ára­tug­um sam­an. Eiga síðustu ár lög­heim­ili í Miðfjarðará yfir veiðitíma­bilið. Ívar var sjálf­ur í leiðsögn og einnig Páll Gísli Jóns­son sem starfar á Krýsu­vík og er mik­ill flugu­veiðimaður. Sporðaköst slóg­ust með í hóp­inn.

Ein glæsileg bleikja í Kaldósnum komin í háfinn hjá Jonna leiðsögumanni. Ljósmynd/Sporðaköst

mbl.is – Veiði · Lesa meira