Hinn hugmyndaríki og orkumikli reykvíkingur ársins árið 2023 bryddar nú upp á enn einni nýjung með nemendum í tíunda bekk í Rimaskóla. Mikael Marinó Rivera er kennari í skólanum og innleiddi nám í stangveiði. Lokaverkefnið í ár hjá hluta hópsins er veiðidraumur í ætt við vinsælu sjónvarpsþættina Draumurinn sem Auddi, Sveppi, Steindi og Jóhann Pétur hafa gert fyrir Stöð 2.
Samtals eru fjórtan nemendur í Rimaskóla í stangveiðiáfanganum. Átta strákar og sex stelpur Allir nemendur eru nú að vinna að lokaverkefnum og hugmyndin að Draumnum kom frá stelpunum sjálfum. Þær hafa myndað tvö lið og þau fengið nöfn. Það er annars vegar Munro killer liðið og svo er það Nighthawk. Nöfnin eru af dýrari gerðinni en bæði þessi nöfn eru dregin af klassískum flugum. Báðar öflugar og gefa árlega mikið af laxi.
Þær keppa í Veiðidraumnum, útskrifarverkefni í 10. bekk í Rimaskóla. Efri röð frá vinstri: Emma Sigrún, Halla Björg og Alexandra Sól. Neðri röð frá vinstri: Ebba Katrín, Hrafndís Bára og Kristjána Rut. Ljósmynd/Mikael Marinó
mbl.is – Veiði · Lesa meira