Barðist við laxinn í Svartá í 90 mínútur

Stærsti lax sumarsins til þessa, allavega sá lengsti veiddist í Svartá í Húnavatnssýslu að kvöldi 21. Júlí. Hann mældist 111 sentímetrar og var hrygna. Fiskurinn er mjósleginn og hafa komið fram efasemdir um mælinguna.

Berglind með hrygnuna löngu úr Svartá. Viðureignin tók eina og hálfa klukkustund. Ljósmynd/Örn Kjartansson

mbl.is – Veiði · Lesa meira