Yfirborð Blöndulóns gutlar nú nánast við efstu mörk stíflumannvirkja. Einungis vantar fimm sentímetra upp á að yfirfall verði. Guðmundur Haukur Jakobsson varaformaður Veiðifélags Blöndu og Svartár segir ekki ástæðu til að hafa miklar áhyggjur af stöðunni og er þá að horfa til laxveiðitímabilsins sem er handan við mánaðamót. Þykir Guðmundi Hauki að skrif Sporðakasta um að hætta væri á að Blanda yrði illveiðanleg í sumar, væri orðum aukið.
„Við áttum fund með Landsvirkjun og fórum yfir stöðuna á vatnshæð lónsins og komandi veiðisumri. Starfsmenn Landsvirkjunar sögðu að útlitið væri ekki eins slæmt og menn hafa áhyggjur af gagnvart yfirfalli og því til staðfestingar fóru þeir yfir töluleg gögn og staðreyndir í gegn um tíðina varðandi sögu vatnshæðar í lóninu. Þeir sögðu að líklega yrði þetta ár sambærilegt 2006 – 2007 þar sem hækkaði verulega í lóninu snemma og datt svo niður þegar snjóbráð var lokið. Þó svo spár geri ráð fyrir að lónið fari á yfirfall á næstu dögum, þá er það ekki eins og yfirfall vegna jökulbráðnunar heldur er talið að það muni verða frekar lítið og dreitla rétt yfir stífluna í stuttan tíma og fari svo af yfirfalli aftur. Snjóbráð er nánast lokið í forðabúri Blöndu þannig að menn þurfa ekki að fara úr límingunum strax,“ upplýsti Guðmundur Haukur í samtali við Sporðaköst.
Langidalur sem Blanda liðast um. Lónið er nánast fullt og yfirfall yfirvofandi. Guðmundur Haukur varaformaður veiðifélagsins telur ekki ástæðu til að hafa áhyggjur. Sagan sýni það. www.mats.is
mbl.is – Veiði · Lesa meira