Margir höfðu áhyggjur af opnun í Norðurá sökum veðurs. Veiðimenn byrjuðu þar á níunda tímanum í morgun og fyrsti laxinn kom á land skömmu síðar. Brynjar Þór Hreggviðsson, einn af umsjónarmönnum árinnar landaði honum á Eyrinni.
Lofthiti fjórar gráður en Norðurá var í flottu vatni – tíu rúmmetrar. „Já, veðrið var ekki að hafa þau áhrif sem menn óttuðust. Það var skaplegra hér í gær en í bænum. Já. Við drógum vel. Byrjuðum á Eyrinni og þar erum við búnir að sjá töluvert af laxi síðustu daga. Ég fékk strax töku en þegar neðar kom og maður fékk gott rek þá sá ég einn elta. Tvö stripp og stöngin niðri. Áfram niðri og hann geirnegldi það,“ lýsti kátur Brynjar Þór hvernig fyrsti laxinn tók í Norðurá þetta veiðitímabilið.
Brynjar Þór með fyrsta laxinn úr Norðurá sumarið 2025. Tók hefðbundna Collie dog númer 12 eða 14, sagði Brynjar. Ljósmynd/Ævar Örn Úlfarsson
mbl.is – Veiði · Lesa meira