„Göngur sem minna á gömlu góðu árin“

Lax hefur bókstaflega ruðst upp í Langá síðasta sólarhring. Yfir fjögur hundruð laxar fóru um teljarann í Skuggafossi síðustu 24 tímana. Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur fylgist grannt með svæðinu og hann segir það hafa verið gríðarlega gaman að sjá þessar göngur í Skuggafossi.

Hér er veiðimaður búinn að setja í lax í veiðistaðnum Lækjarósi. Það stefnir í gott ár í Langá í sumar. Ljósmynd/SVFR

mbl.is – Veiði · Lesa meira