Gunnar Örn kveður Landssambandið í haust

Lands­sam­band veiðifé­laga hef­ur aug­lýst eft­ir fram­kvæmda­stjóra. Gunn­ar Örn Peter­sen hef­ur gengt því starfi síðastliðin fjög­ur ár og læt­ur af störf­um í haust.

Aðspurður seg­ir Gunn­ar að kom­inn sé tími fyr­ir nýj­ar áskor­an­ir hjá sér eft­ir fjög­ur góð ár hjá Lands­sam­band­inu. Hann seg­ist þó ekki far­inn enda muni hann vera í starfi fram á haust. „Síðustu ár hafi verið mjög viðburðarrík í starfi sem er bæði fjöl­breytt, krefj­andi og skemmti­legt. Það sem þó stend­ur upp úr sé gott sam­starf og góð kynni við fé­lags­menn, stjórn Lands­sam­bands­ins og fólk úr fjöl­mörg­um nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­um og fjöl­miðlum. „Ég hef eign­ast marga nýja vini á þess­um árum enda snýst starfið fyrst og fremst um sam­tal og sam­skipti við fé­lags­menn, stjórn­völd og alla þá sem láta sig vernd­un laxa­stofna varða,“ sagði Gunn­ar Örn Peter­sen í sam­tali við Sporðaköst.

Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri LV fer á vit nýrra ævintýra í haust. Hér er hann með stórlax úr Hvannamýri í Ormarsá. Ljósmynd/Sveinn Blöndal

mbl.is – Veiði · Lesa meira