Haffjarðará er að fara ágætlega af stað. Fimm til sex laxar hafa verið að veiðast á dag frá opnun. Á sama tíma er rólegt yfir Laxá í Dölum og opnunarhollið er með einn lax.
Óttar Yngvason var staddur í ánni sinni, Haffjarðará þegar Sporðaköst náðu tali af honum. „Já. Ég sit hérna á árbakkanum og þetta er að fara svipað af stað og í fyrra sýnist mér. Fyrsta hollið veiddi á fjórar stangir og svo fórum við í sex. Það eru að koma á land að meðaltali fimm til sex laxar á dag. Aðeins misskipt milli veiðimanna en þar ræður kannski fyrst og fremst ástundun og hvort menn eru í stuði þann daginn,“ sagði Óttar i samtali við Sporðaköst.
Þessi áttatíu sentímetra lax tók Green Brahan númer 16. og veiddist í Nesenda í Haffjarðará. Ljósmynd/Óttar Yngvason
mbl.is – Veiði · Lesa meira