„Hjónabandið hékk á bláþræði“

Þau hjónin Óli Valur Steindórsson og Ragnheiður Þengilsdóttir áttu stressandi, spennuþrungna en umfram allt gleðistund þegar upp var staðið í Víðidalsá í morgun. Ragnheiður setti í stóran lax í veiðistaðnum Gapastokk.

Ragnheiður Þengilsdóttir með 102 sm hrygnu, sem tekin var á Bláma í Gapastokk. Ljósmynd/Óli Valur Steindórsson

mbl.is – Veiði · Lesa meira