Hreggnasi tekur við Tungufljóti

Samningar hafa tekist milli Hreggnasa ehf og stjórnar Tungufljótsdeildar Veiðifélags Kúðafljóts um leigu á Tungufljóti til næstu fimm ára. Hreggnasi var með hæsta tilboð í leigu á ánni þegar tilboð voru opnuð fyrir tæpum mánuði. Mikill áhugi var á ánni og bárust alls fimmtán tilboð í Tungufljótið frá sjö aðilum.

Jón Þór Júlíusson brosir sínu breiðasta í dag eftir undirritun samnings um fimm ára leigu á Tungufljóti í Skaftafellssýslu. Ljósmynd/Aðsend

mbl.is – Veiði · Lesa meira