Laxveiðiárnar opna nú hver á fætur annarri. Hér að neðan má sjá lista yfir hvenær þær helstu opna. Nú þegar er veiði hafin í Norðurá, Blöndu og Urriðafossi. Einnig er búið að opna svæði í Borgarfirði á borð við Straumana, Skugga og Brennuna. Næsta stóra opnun, ef segja má sem svo er Þverá í Borgarfirði en hún opnar næstkomandi þriðjudag, þann 10. júní.
Við setjum líka inn í þennan lista hvenær stærsti straumur er. Næsti stóri straumur er 12. júní eða eftir tæpa viku. Nú er loksins að hlýna og stækkandi straumur framundan. Þetta eru spennandi tímar.
En hér er listinn yfir opnanir í nokkrum af helstu laxveiðiám landsins. Listinn er ekki tæmandi og við bætum við hann berist upplýsingar um opnunardaga.
Hrönn Jónsdóttir með fyrsta laxinn úr Brennunni þetta árið. Brennan er neðsta svæðið í Þverá og sjálf aðaláin opnar á þriðjudag, þann 10. júní. Þeir eru mættir. Ljósmynd/Veiðipöddur
mbl.is – Veiði · Lesa meira